Jæja.
hvar á maður að byrja að bloggga eftir svona langa fjarveru. Skemst er að segja frá því að við erum flutt að Melgerði 11, á fimmtu hæð í 106fm nýja íbúð. Meirháttar :)
Stelpurnar blómstra eins og blóm í haga að sumri til, Ásdís kemur skellihlægjandi og syngjandi inn um dyrnar á hverjum degi og Andrea má ekki einu sinni vera að því að segja hæ við gamla manninn áður en hún er rokin út að leika sér við vinkonurnar.
Berglind er kominn í vinnu á leikskólanum hérna og gengur bara vel.
Ég er orðinn aðstoðar framleiðslusérfræðingur í kerskála á D-vakt (a.k.a Delta Force eða Landsliðið) og líkar það bara rosalega vel. Samstarfsfólkið meiriháttar í alla staði og mórallinn eftir því. Það stendur til að kíkja í svartaskóg á næstu dögum og fá sér einn eða tvo á næstu dögum til að þétta hópinn, sem nú þegar er þrusu þéttur.
Hér hefur maður eignast marga vini, sérstakalega skal taka fram "Félagann" Sigurð Rúnar. (fáum okkur svartann sem fyrst félagi)
Við bræðurnir erum að fara panta okkur sprænu í sumar til að lemja með flugulínu, drekka bjór og sleikja sólina,...já og reyna veiða eitthvað líka .... :) Rosalega hlakka ég til.
Svo er maður náttlega orðinn Þjónustustjóri Austurlands, fyrir Tölvuvinnsluna. Við erum að nema land hérna og ætlum okkur stóra hluti hérna. Erum nú þegar komnir með um 7 manns í lausa vinnu...svona eftir þörfum. Erum að leyta að húsnæði fyrir verkstæði og svona...bullandi uppgangur hérna fyrir austann sko...
Jæja...farinn að aðstoðar framleiðslusérfræðingast....
L8ter